Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 25. febrúar 2026

Úrræði sem stjórnvöld boðuðu til bæta stöðuna á bráðamóttöku Landspítalans fyrir nær tveimur vikum hafa litlu skilað. Rúmlega hundrað bíða enn á spítalanum eftir komast á hjúkrunarheimili.

Sjö gámar af búnaði og varahlutum fyrir orkuvinnviði frá Landsneti, Veitum og Norðurorku, verða sendir til Úkraínu í vikunni. Forsætisráðherra greindi frá því í gær Ísland setji átta hundruð milljónir króna í orkutengd verkefni í Úkraínu.

Bandaríkjaforseti stærði sig af viðsnúningi í efnahagsmálum og innflytjendamálum í stefnuræðu sinni í nótt en fór ekki með rétt mál. Til snarpra orðaskipta kom milli hans og þingmanna um innflytjendamál.

Mannréttindastjóri Evrópuráðsins vill ákvæði um vistun barna í brottvísunarbúðum verði tekið út úr frumvarpi dómsmálaráðherra.

Björgunarssveitir stóðu í ströngu við aðstoða ökumenn í vetrarfærð á Austurlandi í gærkvöld. Útlit er fyrir færð spillist suðvestanlands eftir hádegi.

Ástarsvikarar á netinu höfðu sjötíu milljónir króna af Íslendingum í fyrra. Aðstoðaryfirlögregluþjónn fjármunabrotadeildar segir slík brot færast í aukana.

Bodø/Glimt varð í gær fyrsta norska fótboltaliðið til vinna leik í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu þegar liðið hafði betur gegn Inter á San Siro-vellinum í Mílanó.

Birt

25. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,