Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. janúar 2026

ICE-liðum fækkar í Minneapolis, hátt settur embættismaður í landamæraeftirliti yfirgefur borgina og Bandaríkjaforseti sendir þangað nýjan fulltrúa til stjórna aðgerðum.

Formaður Samfylkingarinnar segir nýjan oddvita Samfylkingarinnar í borginni hafa sterkt umboð til leiða breytingar. Enn er óvíst hvort borgarstjóri þiggur annað sætið á lista flokksins eftir tap í oddvitakjöri.

Það hillir í framkvæmdir geti hafist við byggingu Þjóðarhallar. Útboðsferli er á lokametrunum.

Ísland mætir Sviss á Evrópumótinu í handbolta í Svíþjóð klukkan hálf þrjú í dag. Ísland er í góðri stöðu til komast í undanúrslit EM í fyrsta sinn í 16 ár en þarf vinna í dag og Slóveníu á morgun.

Dæmi eru um tugprósentustiga hækkanir á fasteignagjöldum vegna hækkana á fasteignaverði.

Dönum sárna mjög nýleg ummæli Bandaríkjaforseta um hermenn NATO í Afganistan, segir þingmaður á Evrópuþinginu og fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur.

Íslenskur líffræðingur tók þátt í raðgreina erfðamengi loðnashyrnings sem fannst í maga úlfahvolps frá ísöld.

Frumflutt

27. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,