Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Viðreisn kynntu í morgun samkomulag um meirihluta í borgarstjórn. Hildur Björnsdóttir verður næsti borgarstjóri.
Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, var í morgun boðið að verða stjórnarformaður Orkuveitunnar. Hann hefur ekki ákveðið hvort hann þiggur boðið.
Maður sem vann í leikskólanum Múlaborg í Reykjavík var í gær dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni þar.
Síðari umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður er ekki lokið. Tíminn er að verða knappur ef halda á þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.
Tugir hafa látið lífið í árásum Ísraela á Líbanon síðasta sólarhring. Árásirnar eru þær mestu í suðurhluta landsins síðustu vikur. Óttast er að þær flæki til muna samningaviðræður Bandaríkjanna og Írans.
Fleiri konur snúa aftur í ofbeldissambönd eftir að hafa leitað sér aðstoðar en síðustu ár.
Og í Múlaþingi undirrita Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur nýjan málefnasamning um meirihlutasamstarf í hádeginu.
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króata í handbolta, fékk háa sekt frá evrópska handknattleikssambandinu fyrir ummæli sem hann lét falla á EM í janúar, þegar hann gagnrýndi skipulag mótsins.