Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. maí 2026

Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Viðreisn kynntu í morgun samkomulag um meirihluta í borgarstjórn. Hildur Björnsdóttir verður næsti borgarstjóri.

Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, var í morgun boðið verða stjórnarformaður Orkuveitunnar. Hann hefur ekki ákveðið hvort hann þiggur boðið.

Maður sem vann í leikskólanum Múlaborg í Reykjavík var í gær dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn barni þar.

Síðari umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður er ekki lokið. Tíminn er verða knappur ef halda á þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst.

Tugir hafa látið lífið í árásum Ísraela á Líbanon síðasta sólarhring. Árásirnar eru þær mestu í suðurhluta landsins síðustu vikur. Óttast er þær flæki til muna samningaviðræður Bandaríkjanna og Írans.

Fleiri konur snúa aftur í ofbeldissambönd eftir hafa leitað sér aðstoðar en síðustu ár.

Og í Múlaþingi undirrita Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur nýjan málefnasamning um meirihlutasamstarf í hádeginu.

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króata í handbolta, fékk háa sekt frá evrópska handknattleikssambandinu fyrir ummæli sem hann lét falla á EM í janúar, þegar hann gagnrýndi skipulag mótsins.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,