Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. júlí 2026

Átök milli Írana og Bandaríkjanna stigmagnast enn. Bandaríkin gerðu árásir á landið í nótt. Þeim svöruðu Íranar með árásum á hernaðarlega innviði Bandaríkjanna í heimshlutanum.

Bláa lónið heldur áfram bæta við sig baðlónum. Félagið hefur aukið hlut sinn í Norðurböðum sem á þrjú vinsæl lón.

Forsætisráðherra vakti nokkra athygli í Tyrklandi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Hún er með mörg þúsund nýja fylgjendur á samfélagsmiðlum sem margir hverjir lofa hana í hástert -- á tyrknesku.

Júní var hlýjasti í Vestur-Evrópu frá upphafi mælinga.

Stjórnvöld í Rússlandi hafa hætt útflutningi á dísilolíu og til stendur flytja inn eldsneyti. Eldsneytisskortur stafar af árásum Úkraínumanna á olíuinnviði.

Þrisvar á síðustu fimm árum hefur MAST fengið tilkynningar um óprúttna aðila sem þykjast vera eftirlitsmenn stofnunarinnar. Stofnunin hefur ekki kært málin til lögreglu, vegna skorts á sönnunargögnum.

Bretinn Arthur Fery hefur komið á óvart á Wimbledon-mótinu í tennis. Hann er fjórði í sögunni sem kemst í undanúrslit á risamóti eftir hafa fengið boðssæti á mótið.

Birt

9. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,