Átök milli Írana og Bandaríkjanna stigmagnast enn. Bandaríkin gerðu árásir á landið í nótt. Þeim svöruðu Íranar með árásum á hernaðarlega innviði Bandaríkjanna í heimshlutanum.
Bláa lónið heldur áfram að bæta við sig baðlónum. Félagið hefur aukið hlut sinn í Norðurböðum sem á þrjú vinsæl lón.
Forsætisráðherra vakti nokkra athygli í Tyrklandi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins. Hún er með mörg þúsund nýja fylgjendur á samfélagsmiðlum sem margir hverjir lofa hana í hástert -- á tyrknesku.
Júní var sá hlýjasti í Vestur-Evrópu frá upphafi mælinga.
Stjórnvöld í Rússlandi hafa hætt útflutningi á dísilolíu og til stendur að flytja inn eldsneyti. Eldsneytisskortur stafar af árásum Úkraínumanna á olíuinnviði.
Þrisvar á síðustu fimm árum hefur MAST fengið tilkynningar um óprúttna aðila sem þykjast vera eftirlitsmenn stofnunarinnar. Stofnunin hefur ekki kært málin til lögreglu, vegna skorts á sönnunargögnum.
Bretinn Arthur Fery hefur komið á óvart á Wimbledon-mótinu í tennis. Hann er sá fjórði í sögunni sem kemst í undanúrslit á risamóti eftir að hafa fengið boðssæti á mótið.