Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. október 2023

Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér embætti fjármálaráðherra. Þetta gerir hann í ljósi álits frá umboðsmanni Alþingis - Bjarna hafi brostið hæfi til samþykkja sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Skapa verði frið um störf ráðuneytisins og sér ókleift starfa áfram.

Afsögn Bjarna veikir ríkisstjórn, sem þegar stendur höllum fæti segir stjórnmálafræðingur. Leiðtogar stjórnarandstöðuflokka segja ákvörðun Bjarna koma á óvart en niðurstaða umboðsmanns geri það ekki.

Minnst 770 Palestínumenn hafa látið lífið í loftárásum Ísraela á Gaza síðan á laugardag og á fimmta þúsund særst. Ísraelsher gerir linnulausar loftárásir og talið er innrás á Gaza í undirbúningi.

Misvísandi skilaboð Evrópusambandsins í gær um stuðning við Palestínumenn eru merki um skiptar skoðanir aðildarríkja um viðbrögð við árás Hamas á Ísrael um helgina.

Flugvél á vegum utanríkisráðuneytisins lenti á Keflavíkurflugvelli snemma í morgun. Um borð voru tæplega 150 manns, Íslendingar, Norðmenn, Færeyingar og Norðmenn sem flúðu átökin í Ísrael.

Karlalið Vals er á miklum skriði í úrvalsdeildinni í handbolta. Liðið lék í gærkvöld sjötta leik sinn í haust og vann sjötta sigurinn.

Frumflutt

10. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir