Karlmaður á áttræðisaldri lést á tjaldsvæði í Biskupstungum og eiginkona hans er þungt haldin á sjúkrahúsi. Talið er að þau hafi orðið fyrir gaseitrun.
Tvö börn fóru á slysadeild eftir að hringekja féll á Bryggjuhátíð á Stokkseyri í gær. Eigandi hringekjunnar harmar atvikið.
Formaður VR telur líklegt að kjarasamningar bresti í haust. Ólíkt fjármálaráðherra segir hún heimsmarkaðsverð á olíu ekki helstu ógnina við forsendur kjarasamninga.
Forsetar Úkraínu og Rússlands ræddu báðir við Bandaríkjaforseta í síma í gær í tilefni af þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna.
Engin alvarleg mál rötuðu á borð lögreglu vegna Goslokahátíðar í Vestmannaeyjum eða Írskra daga á Akranesi.
Tugþúsundir Albana komu saman til mótmæla í höfuðborginni í gær gegn byggingu ferðamannaparadísar í landinu. Mótmælin hafa staðið í yfir mánuð og voru þau fjölmennustu í gær.
Minjar frá því fyrir landnám finnast enn þá í fornleifauppgreftri við Stöð í Stöðvarfirði. Eftir tólfta sumarið er margt enn ókannað.
Hróarskelduhátíðinni í Danmörku lýkur í dag. Tónleikagestir urðu fyrir sárum vonbrigðum með framkomu poppstjörnunnar Lily Allen.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar úrslitaleik við Bretland um sæti í næstu umferð undankeppni HM klukkan tvö í dag. Landsliðsmaður segir að varnarleikurinn skipti höfuðmáli í leiknum.