Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. maí 2026

Sjálfstæðismenn hafa slitið meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn í Hafnarfirði. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fund með sínum borgarstjórnarflokki eftir hádegi. Meirihlutasamkomulag þriggja flokka verður kynnt á Akureyri innan stundar.

Síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB heldur áfram á Alþingi í dag.

Munur á verðlagi á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndum er orðinn tvöfaldur á við launamuninn, samkvæmt nýrri greiningu. Aldrei hefur verið jafn dýrt vera til á Íslandi, samanborið við meðaltal í Evrópu.

Hagvöxtur í ríkjum Evrópusambandsins verður minni í ár og verðbólgan þokast uppávið, segir í nýrri efnahagsspá. Átökin í Mið-Austurlöndum eru höfuðástæðan.

Stór hluti greiðslukortamiðlunar í Danmörku liggur niðri vegna bilunar. Fjölmargir Danir hafa lent í vandræðum.

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákært Raúl Castró fyrrverandi forseta Kúbu fyrir morð og samsæri um myrða Bandaríkjamenn. Ákærurnar ýta undir vangaveltur um Bandaríkjaforseti ætli sér steypa kommúnistastjórn Kúbu.

Kúrasaó verður í sumar fámennasta þjóð nokkru sinni til senda lið á heimsmeistaramótið í fótbolta. Ísland skipaði áður þann sess.

Birt

21. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,