Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. maí 2026

Íranski byltingarvörðurinn segist hafa ráðist á bandaríska freigátu við Hormússund í morgun, Bandaríkin neita þessu. Írönsk stjórnvöld höfðu varað við áformum Bandaríkjaforseta um tryggja siglingu skipa í gegnum sundið með bandarískum herskipum.

Sigling skemmtiferðaskipsins Hondius hingað til lands síðar í mánuðinum ætti ekki vera áhyggjuefni, segir prófessor í smitsjúkdómalækningum. Þrír farþegar eru látnir af völdum veirusýkingar.

Samstaða á vinnumarkaði gegn verðbólgu er grundvöllur fyrir bættum horfum í byggingariðnaði, segir formaður Samtaka iðnaðarins.

Bjarki Þorsteinsson segist ekki ætla vera sveitarstjóraefni Íbúahreyfingarinnar í Hvalfjarðarsveit, eins og áður var tilkynnt. Hann er eftir sem áður sveitarstjóraefni A-listans, sem er hinn listinn í framboði.

Ísland stendur ágætlega í netvörnum, mati forstöðumanns CERT-IS, en hraðri þróun gervigreindar fylgi bæði áskoranir og tækifæri.

Tugir prúðbúinna nemenda Verzlunarskóla Íslands stíga dans í blíðskaparveðri á Ingólfstorgi í tilefni Peysufatadags.

Níunda hvert barn í Danmörku er getið með aðstoð. Frjósemismeðferðum hefur farið fjölgandi síðustu ár, samkvæmt nýjum tölum frá heilbrigðisyfirvöldum þar í landi.

Oddaleik þarf til skera úr um sigurvegara í undanúrslitaeinvígi Stjörnunnar og Tindastóls í körfubolta. Grindvíkingar geta komið sér í úrslit með sigri á Val í kvöld.

Birt

4. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,