Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. apríl 2026

Íranar réðust á vatnshreinsistöð í Kúveit og gerðu einnig árásir á Ísrael og fleiri skotmörk í Persaflóa í nótt. Bandaríkjaforseti gefur enn í hótanir gegn Íran og segir Bandaríkjaher rétt byrja.

Dræmt fylgi Framsóknarflokksins í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup er brýning um gera þurfi betur, segir formaðurinn. Flokkurinn þurfi leita í ræturnar til betur til landsmanna.

Rússneski herinn hefur látið eldflaugum og drónum rigna yfir skotmörk í Úkraínu síðan í gærkvöldi. Þetta er í annað skiptið í þessari viku sem Rússar fylgja næturárásum eftir fram í dagsbirtu.

Lögreglan lokaði þremur afhendingarstöðum áfengisverslana á Akureyri í gærkvöld fyrir afhenda áfengi á helgidögum.

Bandarísk kona, sem hvarf þrettán ára gömul fyrir þrjátíu og tveimur árum er fundin heil á húfi. Tækniframfarir og nýjar rannsóknaraðferðir skiptu sköpum eftir áratuga leit.

Það er ekkert sem býr þig undir svo stórkostlega sýn á jörðina, segir einn geimfarana fjögurra sem eru á leið til tunglsins eftir hafa hringsólað jörðu.

Árleg píslarganga umhverfis Mývatn er gengin í dag, á Föstudaginn langa. Slæmt veður setur svip á gönguna í ár segir skipuleggjandi, færri taka þátt en vanalega.

Skíðasvæði landsins eru vel sótt í dag og blíðskaparveður á mörgum þeirra. Ekki síst norðan heiða þar sem er mikill snjór og sól og blíða.

Birt

3. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,