Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 20. febrúar 2026

Á annan tug bætast við í hverri viku - í hóp þeirra sem bíða eftir hjúkrunarrými á Landspítalanum. Í síðustu viku tókst koma þrjátíu þaðan, en rúmlega hundrað bíða ennþá.

Tveir starfsmenn heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu greindust með berklasmit í skimun. Starfsmennirnir eru ekki smitandi og eru skjólstæðingar ekki útsettir fyrir smiti.

Húsleit stendur enn yfir í aðsetri Andrews Mountbatten-Windsor - í Windsor. Hann var látinn laus í gær eftir 11 tíma yfirheyrslur en er enn til rannsóknar.

Grindvíkingar eru ánægðir með geta valið hvar þeir kjósa í sveitarstjórnarkosningum í vor. Ekki á fækka kjörnum fulltrúum í bænum.

Spenna vex á milli Bandaríkjamanna og Írana sem hóta hver öðrum árásum. Bandaríkjaforseti gefur Íransstjórn 10-15 daga til samkomulagi um kjarnorkuvopn. Olíuverð hækkaði skarpt vegna óvissunnar.

Forseti sveitarstjórnar Múlaþings hvetur umhverfis- og samgöngunefnd til láta endurreikna arðsemi Fjarðarheiðarganga þar sem hún hafi verið grunnforsenda þess slá göngin af.

Erfitt verður fyrir rússnesk stjórnvöld takast á við afleiðingarnar heima fyrir ef til stríðsloka kemur í Úkraínu, segir sérfræðingur í málefnum Rússlands. Bandaríkin haldi líflínu í Rússum á alþjóðavettvangi, sem þeim þó dýrkeypt.

Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnar í hádeginu - gleðiefni fyrir skíðaáhugafólk í vetrarfríi.

Birt

20. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,