Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 10. febrúar 2026

24 voru handteknir, þar af 11 á Íslandi, í stórri aðgerð Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi í nokkrum löndum - til uppræta fíkniefnahring sem smyglaði miklu kókaíni milli landa.

Forsætisráðherra tekur ekki undir gagnrýni hagfræðinga og aðila vinnumarkaðarins á tengingu almannatrygginga við launavísitölu. Þetta pólitísk ákvörðun og aðgerðin fjármögnuð.

Deilur í háskólanum á Bifröst hafa meðal annars snúist um verktakagreiðslur til nokkurra starfsmanna. Sumir þeirra hafa fengið allt 10 milljónir króna á ári með slíkum greiðslum.

Áform ísraelskra stjórnvalda um frekari yfirtöku á palestínsku landsvæði á Vesturbakkanum mæta andstöðu úr flestum áttum. Breskt stjórnvöld segja þau í trássi við alþjóðalög.

Formaður Samtaka vistheimilabarna segir ef enginn beri ábyrgð í ofbeldismálum gegn börnum sem sett voru á vistheimili þá taki ofbeldið ekki enda.

Upp úr sauð á sveitarstjórnarfundi á Vopnafirði vegna enskunotkunar eins fulltrúa Framsóknar. Fulltrúinn sem er frá Svartfjallalandi tilkynnti í gær hún hygðist hætta, meðal annars vegna framkomu oddvita minnihlutans.

Veðuröfgar einkenndu janúarmánuð þetta árið, bæði í kulda og hita. Þótt mánuðurinn slægi engin veðurmet er hann fimmti heitasti frá upphafi mælinga.

Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson kepptu í sprettgöngu á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í morgun. Hvorugt þeirra komst í úrslit en Kristrún bætti sig um þrettán sæti í greininni frá síðustu leikum.

Birt

10. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,