Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. febrúar 2024

Bandaríkjaforseti er vongóður um vopnahlé náist á Gaza innan viku; hlé sem gæti varað framyfir föstumánuð múslima. Forsætisráðherra Ísraels segir vopnahlé kæmi ekki í veg fyrir innrás í Rafah, heldur seinkaði henni.

8 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir undir Svartsengi. Miklar líkur eru á eldgosi næstu daga. Um þrjár mínútur tekur rýma fiskvinnslu Vísis í Grindavík, þar sem tuttugu starfa nú, ef gýs á vinnutíma.

Ásgeir Jónsson verður seðlabankastjóri í fimm ár til viðbótar. Forsætisráðherra ákvað auglýsa ekki stöðuna og því endurnýjast skipunartími hans sjálfkrafa.

Forseti Frakklands útilokar ekki Evrópuríki sendi herlið til Úkraínu, til aðstoðar í stríði við Rússland. Talsmaður Kremlar segir óhjákvæmilegt það hefði í för með sér stríð milli Rússlands og allra NATÓ-ríkja.

Neytendur eiga erfitt með sækja rétt sinn vegna samkeppnisbrota. Reglugerð til úrbóta hefur legið óhreyfð í ráðuneyti í tíu ár. Þingmaður Viðreisnar segir stjórnvöld þurfi jafna leikinn.

Grásleppuvertíð hefur verið flýtt um 20 daga, svo smábátaeigendur missi ekki af verðmætum páskamarkaði í Danmörku. Veiðar mega hefjast á föstudag.

Frumvarp forsætisráðherra um innlenda greiðslumiðlun vekur gjörólík viðbrögð í umsögnum. Neytendur og launþegar fagna en fjármálafyrirtæki eru full efasemda.

Frumflutt

27. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir