• 00:00:07Brothætt - Steinunn Knúts- Önnudóttir
  • 00:22:27Tumi Árnason um Hljóðön ofl
  • 00:31:41Nína Sæmundsson - Ynda Eldborg

Víðsjá

Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar

Við hefjum þáttinn á því heimsækja sviðslistakonuna Steinunni Önnu Knútsdóttur, sem stendur þessa dagana þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna, og safnar bæði brotnu leirtaui og sögum í aðstöðu sinni á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Tumi Árnason flytur svo sinn hálfsmánaðarlega pistil um miðbik þáttar og fjallar meðal annars um stafrænan draugagang píanóleikara í parís og rými innan í rými í Hafnarborg.

Upplýsingar óskast um listakonuna Nínu Sæmundsson. Áttu verk eftir Nínu Sæmundsson, eða upplýsingar um líf hennar og feril? Svo hljóðar auglýsing sem Listasafn Reykjanesbæjar setti nýverið í loftið, en fyrirhuguð er sýning á verkum Nínu í safninu í haust. Sýningarstjórar eru þær Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir, en samkvæmt þeim er enn margt á huldu þegar kemur lífi og list Nínu.

Birt

5. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,