• 00:02:23Fallegustu bækur í heimi
  • 00:20:37Arkitektúr 2022: yfirlit Óskars Arnórssonar
  • 00:37:56Ímynd

Víðsjá

Fallegustu bækur í heimi, arkitektúr 2022, Ímynd

Þegar kemur því velja fallegustu bók í heimi, þá er hönnun kápunnar aðeins einn af þeim þáttum sem vert er hafa í huga. Horfa þarf í letur, pappír, umbrot, þyngd, hlutföll, áferð og samtal alls þessa við inntak bókarinnar. Þegar allt kemur saman í hárréttu jafnvægi verður til falleg bók sem talar til lesandans.

Í 60 ár hefur þýska bókmenntastofnunin Stiftung Buchkunst haldið utan um alþjóðlega keppni um bókahönnun, til efla samtal um bækur og hönnun. Á föstudag opnar Félag íslenskra teiknara í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands sýningu þar sem hægt er sjá,og lesa og handleika, fallegustu bækur síðasta árs. Við lítum þar inn í þætti dagsins.

Ímynd heytir heim í sex þáttum þar sem íslensk ljósmyndun er skoðuð út frá sjónarhorni lista, landslags, samtímans, skrásetningar, fréttaflutnings, fortíðar og framtíðar. Umsjónarkonurnar eru hlustendum Rásar 1 góðu kunnar: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir sem fjölluðu meðal annars um ljósmyndir út frá ýmsum vinklum í þáttunum Glans hér á Rásinni um árið en stjórn upptöku og framleiðsla er í hönudum Hrafnhildar Gunnarsdóttur. Við tökum Katrínu Ásmundsdóttur tali í þætti dagsins.

Og við heyrum pistil frá Óskari Arnórssyni, sem þessu sinni ætlar fara yfir árið 2022 í arkitektúr. Hvað er það sem honum finnst einkenna árið sem var líða og í hvaða átt eru arkitektar horfa í dag. Hvað ber framtíðin í skauti sér þegar kemur straumum og stefnum í arkitektúr.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson

Frumflutt

18. jan. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,