Víðsjá

Katti Frederikssen um Grænland, Tilboð mánaðarsins, Ekki hugmynd/rýni

„Við höfum alltaf horft á Dani sem nýlenduherra en okkur hefur alltaf verið kennt Danir séu góðir nýlenduherrar. Og sumir trúa því enn,“ segir Katti Fredrikssen bókaútgefandi, skáld og fyrrverandi menningarmálaráðherra Grænlands. Katti er málfræðingur mennt og hefur um árabil verið ötul talskona grænlenskrar tungu. Víðsjá hitti Katti í Norræna húsinu og ræddi við hana um upphaf ástríðunnar fyrir tungumálinu og um áhrif stjórnmálahræringa síðustu missera á Inúita.

Fyrsta þriðjudag hvers mánaðar fer fram viðburður í Tjarnarbíói sem kallast Tilboð mánaðarins. Þetta er leiklestrarröð þar sem vel valdir leikarar flytja æfða leiklestra en listrænir stjórnendur eru þær Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir. Þær líta í hljóðstofu.

Katla Ársælsdóttir rýnir í leikverkið Ekki hugmynd, sem Gaflaraleikhúsið sýnir á fjölum Borgarleikhússins.

Birt

9. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,