Víðsjá

Dómur Finns Arnars, Ljóðamót á Akureyri og Mömmó/rýni

Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þáttar, en hefjum leikinn fyrir norðan, þar sem Ljóðaklúbbur Akureyrar undirbýr Ljóðamót kvöldsins í fornbókabúðinni Svörtum bókum. Þá rýnir Katla Ársælsdóttir í leiksýninguna Mömmó, sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu fyrir helgi.

Birt

17. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,