Víðsjá

Ferðalag í gömul sár, Lamento í frönsku útvarpi og mýkt sem styrkur

Páll Ragnar Pálsson tónskáld, er nýkominn heim frá París þar sem hann var við upptökur á kammerverkinu Lamenta. Það var franska ríkisútvarpið, Radio France, sem pantaði hjá honum verkið eftir hann hlaut fyrstu verðlaun á alþljóðlega tónskáldaþinginu Rostrum. Við heyrum meira af því ævintýri í þætti dagsins.

"Það þarf ekki bara eitthvað eitt leikhúsverk, það þarf mörg leikhúsverk, það þarf margar bækur, margar bíómyndir. Það eru svo ótal margir vinklar og margt sem þarf skoða, margt sem er óþægilegt og margt erfitt," segir Eva Rún Snorradóttir, sviðshöfundur, en í verkinu Góða ferð inn í gömul sár, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir, freistar hún þess gera upp HIV faraldurinn á Íslandi með heimilda- og þátttökuleikúsi. Við hittum Evu Rún og fáum vita meira.

Og í dag fáum við pistil frá Freyju Þórsdóttur, heimspekingi, sem steig hér á stokk með sinn fyrsta pistil fyrir 2 vikum síðan og verður hér með okkur fram á vorið. Í dag Freyja fjallar í dag um leiki lífsins og mýkt sem styrk. Í því samhengi skoðar hún m.a. hvaða hvernig auglýsingar stórfyrirtækja geta endurspeglað úreltar hugmyndir um náttúruna, og hvaða áhrif það getur haft þegar umhyggja er ekki metin verðleikum í samfélagi. Þjáist heimurinn mögulega af lífshættulegum umhyggjuskorti?

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir

Frumflutt

16. feb. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,