Víðsjá

Á milli mála í Skáldu, Sumé- fyrsta grænlenska heimildamyndin, Minnisblöð veiðimanns /rýni

Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2024. Víðsjá ræddi við þær um skúlptúrana á sínum tíma þar sem þær sögðust vera dáldið hræddar um, svona í ljósi listasögunnar við Tjörnina. Og það vildi einmitt til í miðju samtali sáum við unga drengi reyna stela hluta af verkinu, en það er sennilega í eina skiptið sem listrán hefur átt sér stað í beinni útsendingu á Rás1. Við rifjum ránið upp í þætti dagsins og heyrum af nýju bókinni.

Einnig rifjum við gefnu tilefni upp umfjöllun um fyrstu grænlensku heimildamyndina, Sumé-The sound of Revolution og Gauti Kritsmannsson rýnir í Minnisblöð veiðimanns eftir Túrgenev.

Birt

12. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,