Víðsjá

Svipmynd af heimspekingi / Sigríður Þorgeirsdóttir

Sigríður Þorgeirsdóttir er heimspekingur og prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Hún lagði stund á fagið í Boston og Berlín þaðan sem hún lauk doktorsprófi 1993 og fjórum árum síðar varð hún fyrst kvenna til verða fastráðinn kennari í heimspeki við Háskóla Íslands.

Á ferli sínum hefur Sigríður leitast við stunda rannsóknir á heimspeki sem byggir á reynslu og upplifun; lífinu sjálfu. Hún hefur rannsakað þátt kvenna í sögu heimspekinnar og sýnt konur hafa allt frá fornöld lagt stund á fagið þó lítið verið gert úr framlagi þeirra í hugmyndasögu fræðanna. Undanfarin misseri hefur Sigríður staðið fyrir heimspekigjörningnum Minisophy eða Smáspeki sem rannsakar heimspekilega vídd hversdagslegra fyrirbæra, en innan háskólans hefur hún leitt rannsóknarverkefnið Líkamleg gagnrýnin hugsun eða Embodied Critical Thinking, verkefni sem endurnýjar aðferðir heimspekilegrar hugsunar með hugsa markvisst út frá reynslu.

Frumflutt

17. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,