• 00:02:30Frost: Rýni
  • 00:13:32Andrúmsloft Viktoríu Blöndal
  • 00:26:00Afbygging Helguvík:Libia Castro & Ólafur Ólafsson

Víðsjá

Afbygging stóriðju í Helguvík, Frost, andrúmsloft

Libia Castro & Ólafur Ólafsson hafa unnið saman myndlist frá því þau kynntust í Holland 1997. Þau starfa jöfnum höndum í Berlín, Malaga og Reykjavík en verk þeirra byggja oftar en ekki á þverfaglegum samvinnuverkefnum sem taka á sig mynd í ólíkum miðlum. Ólafur og Libia hafa sýnt víða um heim og hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín. Þau fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn 2011 og 2020 voru þau valin myndlistarmenn ársins hér á landi fyrir sýninguna Í leit töfrum tillaga nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland. Þau sýna um þessar mundir í Listasafni Reykjanesbæjar, sýningu sem kallast Afbygging stóriðju í Helguvík og við lítum þangað inn í þætti dagsins.

Nína Hjálmarsdóttir rýnir í Disney söngleikinn Frost sem frumsýndur var um liðna helgi í Þjóðleikhúsinu.

Viktoría Blöndal sviðslitakona heldur áfram leita uppi andrúmsloft í sínu fjórða innslagi af sex.

Frumflutt

4. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,