Víðsjá

Far heimur, far sæll, Satanvatnið, DJ Bambi

Rithöfundurinn Ófeigur Sigurðsson gaf nýverið út skáldsöguna Far heimur, far sæll. Mýrarauða bók um hið alræmda Kambsrán sem gerðist á suðurlandsundirlendinu á 19. Öld. Skáldsaga Ófeigs miðlar áhrifum glæpasagna og vestra á afar ljóðrænan hátt en rannsakar umfram allt veru okkar í heiminum, í gegnum sterkar náttúrulýsingar á hinu innra og ytra. Ófeigur verður gestur okkar í dag.

Metal ballettinn Satanvatnið verður frumsýndur á fimmtudag í Tjarnarbíói. Höfundurinn Selma Reynisdóttir vinnur þar með mikið af þeim klisjum sem fyrirfinnast í listformunum tveimur, klassískum ballett og þungarokki. Og listformin eiga meira sameiginlegt en okkur grunar í fyrstu, til mynda þjáninguna, hvassar andstæður, upphafin egó og hina eilífu baráttu góðs og ills. Við lítum inn á æfingu í þætti dagsins og ræðum þar við nokkra aðstandendur verksins.

En við hefjum þáttinn á rýni í nýjustu skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, DJ Bamba. Soffía Auður Birgisdóttir tekur við.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Frumflutt

19. des. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,