Víðsjá

Umbreyting, Dugguvogur 42 og Lisa O'Neill

Umbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum því skrásetja gjörninga í gjörningaarkíf Nýlistarsafnsins en sýningin rekur einnig slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast lengi eða komið stuttlega við á Íslandi og valdið óróa, hlátri eða hneykslun. Við gerum okkur ferð í Nýlistarsafnið.

Við hugum einnig örlögum Dugguvogs 42 en til stendur rífa bygginguna til koma fyrir tímabundinni hjáleið fyrir umferð á meðan framkvæmdir við Sæbrautarstokk standa yfir. Á byggingunni eru hins vegar verðmæt steypt lágmyndarverk listamannsins Gerðar Helgadóttur frá árunum 1971 til 1972. Við veltum fyrir okkur örlögum hússins og verðmætum verkanna í þættinum.

lokum rifjum við upp innslag um breiðskífu írsku tónlistarkonunnar Lisu O'Neill, All of This is Chance.

Birt

25. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,