Víðsjá

Svipmynd af tónskáldi / Anna Þorvaldsdóttir

Anna Þorvaldsdóttir er meðal kunnustu tónskálda Íslands og ekkert minna en súperstjarna í heimi klassískrar tónlistar. Verk hennar eru flutt í bestu tónleikahúsum heims og margar af helstu hljómsveitum heims hafa pantað hjá henni verk. Tónverkum hennar hefur verið lýst sem einstökum innan samtímatónlistar og sköpunarkrafti hennar mætti auðveldlega líkja við einhverskonar náttúruafl. Anna býr í Surrey á Englandi en ferðast mikið til vera viðstödd flutning á tónlist sinni víðsvegar um heim. Í dag er hún stödd í Reykjavík til vera viðstödd tvenna tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem verk hennar verða í aðalhlutverki. Anna verður gestur Víðsjár í dag.

Brot úr eftirtöldum verkum eru leikin í þættinum: Aion, Archora, Metacosmos, Sola og Catamorphosis.

Frumflutt

4. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,