• 00:02:19Kirkjugarður í París
  • 00:18:33Exotica tónlistarhreyfingin
  • 00:29:31Annars flokks æðardúnn

Víðsjá

Annars flokks æðardúnn, kirkjugarður í París, Exotica tónlistarstefnan

Í Ásmundarsal varpar hönnunarteymið Erindrekar ljósi á notagildi og gæði annarsflokks æðardúns. Íslenski æðardúnninn er fyrir löngu orðin þekktur sem hágæða vara víða um heim en vilja ungir hönnuðir, sem einnig eru æðarbændur á Skálanesi í Seyðisfirði, nýta það sem fellur frá við hreinsun á fyrsta flokks æðardúni. Við hittum hönnuðinn og æðarbóndann Signýju Jónsdóttur á sýningunni.

Þorleifur Sigurlásson segir frá tónlistarstefnunni Exotica sem dregur nafn sitt af plötu eftir bandaríska tónlistarmanninn Martin Denny og einkennist af píanóleik, slagverki og fuglaköllum.

Við heimsækjum einnig kirkjugarð í París í þætti dagsins.

Frumflutt

6. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,