Víðsjá

Samfélag í bleyti til Feneyja, Sinfóárið framundan, Haukur Þorgeirs pistill #11

Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi frá sér dagskrárbækling fyrir næsta tónleikaár og verður þar ýmsu til tjaldað. Nýr Aðalhljómsveitarstjóri, Barbara Hannigan, tekur við. Nýr staðarlistamaður og staðartónskáld taka til starfa og margar stórstjörnur sígildrar tónlistar koma utan. Guðni Tómasson, framkvæmdarstjóri sveitarinnar, heimsækir okkur og segir frá tónleikaárinu.

Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor fræðir okkur um sagnakvæðið Gullkársljóð en þar segir frá konungsdótturinni Æsu sem verður ástfangin af álfi í skarlatsklæðum.

En við byrjum á arkitektúr. Í síðustu viku var tilkynnt hverjir fara fyrir Íslands hönd á tvíæringinn í arkitektúr í Feneyjum, en verkefni Basalt arkitekta, Samfélag í bleyti, hefur verið valið framlag Íslands. Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, kemur í heimsókn og segir frá því sem koma skal.

Birt

8. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,