Víðsjá

Ásta Dóra, María Qing og Henry Threadgill

Fyrsti þáttur haustsins er tileinkaður tónlist úr mjög ólíkum áttum. Þær Ásta Dóra Finnsdóttir og María Qing Sigríðardóttir eru meðal stærstu vonarstjarna okkar á sviði klassískrar tónlistar. Ásta Dóra stundar nám í Curtis, einum virtasta tónlistarháskóla heims, og María er eftirsóttur sellisti í Þýskalandi, þar sem hún er búsett. Þrátt fyrir vera rétt um tvítugt hafa þær báðar leikið einleik með fleiri en einni sinfóníuhljómsveit og framundan eru spennandi tækifæri hér heima og erlendis. Þær líta við í hljóðstofu en í framhaldinu höldum við svo áfram huga tónlistarmanninum Henry Threadgill og heyrum af tónleikum sem hann hélt með hljómsveit sinni Air í Gamla bíói árið 1982

Birt

17. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,