Víðsjá

Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey

Hverafugl kallast hátíð sem sett verður í Hveragerði í næstu viku. Þar hafa listrænir stjórnendur, þau Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir stefnt saman tónlistarfólki úr ólíkum kimum tónlistarsenunnar. Hátíðin hefur verið lengi í undirbúningi með heimafólki og hluti efnisskránnar er tónlist tengd svæðinu en tónleikar munu einnig spretta upp á óvæntum stöðum um bæinn. Við ræðum við Ingibjörgu Ýr í þættinum.

Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur þetta árið við hátíðlega athöfn í Höfða í gær, og mun það vera í fyrsta sinn sem arkitekt hlotnast heiður. Við höfum átt nokkur góð samtöl hér í þættinum við Arnhildi í gegnum tíðina, og við rifjum upp brot úr einu slíku.

Stomp Clap Hey er hugtak yfir tónlistarfyrirbæri sem netverjar keppast um skilgreina sem og stimpla tiltekna listamenn með. Þetta á við um tónlist sem sækir í akústísk hljóðfæri, kassagítara, kontrabassa, bongótrommur, tambúrínur og þar fram eftir götunum og einkennast lög, sem tilheyra þessari tónlistarstefnu, gjarnan af stappi, klappi og samsöng þar sem orðið hey er kallað inn í tónlistina. Við tökum tónlistarfræðinginn Arnar Eggert Thoroddsen tali um þessa nýju en á sama tíma gömlu tónlistarstefnu.

Birt

18. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,