Víðsjá

James Merry, Rót/rýni og Maístjarnan

Við lítum við á sýningu James Merry, sem opnaði um liðna helgi í Listasafni Íslands og hefur yfirskriftina Ummyndlingar. Þar eru til sýnis grímur sem James hefur búið til á 15 ára tímabili, stórum hluta í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur, en sýning hennar, Echolalia er sýnd í safninu samhliða. Við heyrum líka umfjöllun Trausta Ólafssonar um brúðuleiksýninguna Rót, sem sýnd er í Tjarnarbíói í tilefni af Listahátíð í Reykjavík, og rifjum upp umfjöllun og lestur úr vinningsbók Maístjörnunnar, Mara kemur í heimsókn, eftir Natöshu S.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,