Víðsjá

Leyndarmál

Víðsjá fjallar um leyndarmál í dag. Við fáum til okkur danshöfundinn Ásrúnu Magnúsdóttur, höfund Leyndarmáls sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld í tengslu við Reykjavík Dance Festival. Verkið byggir á leyndarmálum unglinga og með henni í för verða einmitt tveir slíkir, Monika Lárusdóttir og Andrea Sæmundsdóttir. Venting Machine er listgjörningur eftir Herdísi Hlíf Þorvaldsdóttur sem býður fólki tjá líðan sína í texta og senda á tiltekið símanúmer undir nafnleynd en allar færslur sem sendar eru á númerið birtast síðan á Instagramsíðu listaverksins. Og Rakel Adolphsdóttir, safnstýra kvennasögusafns í þjóðarbókhlöðunni segir frá þeim leyndarmálum sem safninu berst.

Frumflutt

16. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,