• 00:02:08Ljóðstafur Jóns úr Vör
  • 00:17:42Freyja Þórsdóttir um frelsi
  • 00:35:08Molta

Víðsjá

Ljóðstafur Jóns úr Vör, Molta og Frelsi

Vala Hauksdóttir hlaut á sunnudag Ljóðstaf Jóns úr Vör við hátíðlega athöfn í Salnum í kópavogi fyrir ljóð sitt, Verk finna. Við setjumst niður með Völu og ræðum um ljóðið og skrifin í þætti dagsins. Molta er þverfagleg og lifandi innsetning sem verður opin gestum og gangandi í Gerðarsafni í Kópavogi frá fimmtudegi. Hægt verður njóta hennar á opnunartíma safnsins, en einnig verða sérstakar sýningar sem sýndar verða kvöldi til eftir hefðbundum opnunartíma líkur, fjórum sinnum á næstu vikum. Við hittum Rósu Ómarsdóttur höfund Moltu í þætti dagsins og heyrum af rótum, rotnun, bakteríum og umróti ýmiskonar. Freyja Þórsdóttir verður einnig með okkur í þættinum en í dag fjallar hún um mismunandi gerðir af frelsi. Í því samhengi veltir hún m.a. fyrir sér ólíkum áhrifum listarinnar og auglýsinga á andlega velferð.

Frumflutt

22. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,