Víðsjá

Hjartabrostnar borgir, Hjartadrottning og Möguleg æxlun

Í þættinum förum við í Gerðarsafn í Kópavogi og ræðum við Sóleyju Ragnarsdóttur um sýninguna Hjartadrottning sem verður opnuð næsta laugardag. Hún segir okkur frá servíettusafni ömmu sinnar og hvernig það hefur orðið innblæst fyrir myndlistarverk og plastdrasli sem hún hefur týnt á ströndum Danmerkur þar sem hún er búsett.

Jakub Stachowiak, rithöfundur, hefur verið flytja okkur esseyjuseríuna hjartabrostnar borgir þar sem hann segir frá ferðalagi sínu til Ítalíu til skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Í síðustu pistlum heyrðum við af sárri höfnun sem Jakub varð fyrir þegar hann reyndi taka þráðinn upp aftur með sínum fyrrverandi í Róm. Og af því þegar hann til borgarinnar Napólí til reyna dreifa huganum frá sorginni. Í síðasta pistli sínum í dag heldur hann til Amsterdam en er ekki svo heppinn með veður.

Einnig náum við tali af myndlistarmanninum Brák Jónsdóttur um sýninguna Möguleg æxlun eða Possible Oddkin sem hún hlaut hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir í mars. mati dómnefndar þóttu skúlptúrar Brákar og gjörningatengsl hennar við marga þeirra slái áhugaverðan tón í myndlistinni og í þeim kjarnist margar af mikilvægari spurningum samtímans um tengsl manns og náttúru.

Frumflutt

11. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,