Víðsjá

Aðgát á Kjarvalstöðum, Hjartabrostnar borgir, Félagsskapur með sjálfum mér

Á sýningunni Aðgát á Kjarvalsstöðum varpar sýningarstjórinn Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir ljósi á ríflega sex áratuga langan feril Borghildar Óskarsdóttur. Borghildur Óskarsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1942 og á baki merkan listferil. Hún vakti fyrst athygli fyrir leirverk á áttunda áratugnum en móðir jörð og tengsl okkar mannanna við hana hafa verið Borghildi hugleikin allan hennar feril. Hún vann, og vinnur enn, verk sín í fjölbreytta miðla en leirinn og glerið hafa fylgt henni allan ferilinn. Við hittum sýningarstjórann á Kjarvalstöðum í þætti dagsins.

Við kynnum einnig til leiks pistlahöfund hér í Víðsjá. Jakub Stachowiak, rithöfundur, skrifar okkur fjórar esseyjur um hjartabrostnar borgir; ferðalag erlendis sem hann hélt í síðasta sumar til skrifa skáldsögu og jafna sig á ástarsorg. Pistlarnir verða eins konar framhaldssaga og því munum við heyra þann næsta í röðinni á morgun og svo koll af kolli út vikuna.

En við hefjum þáttinn á því fara í leikhúsið. Trausti Ólafsson verkið Félagsskapur með sjálfum mér í Tjarnarbíói.

Frumflutt

8. apríl 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,