Víðsjá

Terta í Elliðaárstöð, Þórdís Erla Zoega í Berg Contemporary

Meðal verðlaunahafa á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 var þverfaglega hönnunarteymið Terta. Hópurinn endurhannaði Elliðaárstöð og umhverfi hennar fyrir Orkuveituna og úr varð eftirtektarverður áfangastaður, svæði sem var áður afvikið iðnaðarsvæði en iðar af lífi árið um kring. Við hittum tvo meðlimi Tertu, þær Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð og Evu Huld Friðriksdóttur, arkitekt í þætti dagsins.

Við lítum við líka í Gallery Berg og ræðum við Þórdísi Erlu Zoega um sýningu hennar Domestic Sci-fi. Þar vinnur Þórdís meðal annars með þá tilfinningu nútíminn löngu farinn fram úr þeirri framtíðarsýn sem við ólumst upp við. Hið heimilislega er orðið vísindaskáldskap.

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,