Víðsjá

Birtingur, Eliane Radigue og Laxnesssafn Magnúsar Jóhanns

Birtingur Voltaire verður frumsýndur í nýrri leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Í raun er um rokkóperettu ræða, en tónlistina gerði Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Við hefjum þáttinn á því taka púlsinn á leikstjóranum og leikhússtjóranum Bergi Þór og heyra af verkinu og aðdragandanum.

Franska tónskáldið Éliane Radigue lést fyrr í vikunni, 94 ára aldri. Radigue var frumkvöðull á sviði raftónlistar og minimalisma og þekkt fyrir löng og hugleiðslukennd hljóðverk unnin með hliðrænum hljóðgervlum. Pétur Eggertsson segir okkur nánar af verkum Radigue í þætti dagsins. Og við lítum í heimsókn til Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar, sem sýnir okkur merkilegt safn sitt af verkum Laxness.

Birt

26. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,