• 00:02:34Ísak Harðarson
  • 00:12:44Matthew Barney
  • 00:28:29Úlfur Eldjárn

Víðsjá

Matthew Barney, Úlfur Eldjárn, Ísak Harðarson

Úlfur Eldjárn gaf út nýtt lag í síðustu viku og von er á plötu á næstunni. Lagið ber nafnið Continuum, og gefur forsmekk því sem koma skal í nýrri plötu,

Það er samið fyrir píanó og rafrænan hljóðheim sem er mestu búinn til úr píanóhljóðum. Úlfur mun setjast við flygilinn í Hannesarholti á miðvikudag og flytja tónlist af væntanlegri plötu, með aðstoð tölvu, hljóðgervla og hljóðfetla og tveggja hljóðfæraleikara. Við setjumst niður með Úlfi í þætti dagsins og fáum heyra af þessari nýju tónlist.

Við könnum líka hvað bandaríski myndlistarmaðurinn Matthew Barney er bardúsa þessa dagana. Á dögunum opnaði hann sýningu á nýju fimm rása myndbandsverki á vinnustofu sinni, eða öllu heldur í heilmiklu iðnaðarhúsnæði sínu, á Long Island við New York. Verkið hefur með frægt atvik úr bandaríska fótboltanum gera, alvarlega tæklingu sem er orðin 45 ára og Barney tekur til skoðunar í nýju verki sem hann kallar Secondary. Við heyrum nánar af grófri tæklingu í Víðsjá dagsins.

En við ætlum hefja þáttinn á því minnast Ísaks Harðarsonar, sem lést fyrir aldur fram síðastliðinn föstudag, þann 12.maí.

Frumflutt

15. maí 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,