• 00:02:06Árni Matthíasson um Sakamoto
  • 00:14:22Una Björg Magnúsdóttir um Svikulan silfurljóma
  • 00:35:09Arfur og umhverfi eftir Vigdis Hjorth

Víðsjá

Arfur og umhverfi, Svikull silfurljómi, Sakamoto

Á laugardaginn opnaði sýning myndlistarkonunnar Unu Bjargar Magnúsdóttur í samkomuhúsinu á Súðavík. Una Björg er fjórði listamaðurinn sem velst til þátttöku í sýningarröð Listasafns ASÍ þar sem skipulagðar eru einkasýningar valinna listamanna á tveimur stöðum á landinu. Víðsjá sendir útsendara af stað og lítur inn í samkomuhúsið á Súðavík og fær heyra af sýningunni Svikull silfurljómi frá listakonunni sjálfri, en einnig verður rætt við Elísabetu Gunnarsdóttur safnstjóra listasafns ASÍ.

Við heyrum einnig af norskri bók, Arfur og umhverfi eftir Vigdis Hjorht, sem nýverið kom út í íslenskri þýðingu Ísaks Harðarsonar. Hjorth er einn fremsti samtímahöfundur Noregs og er Arfur og umhverfi, hennar þekktasta verk. Bókin fjallar um fjölskyldu sem stendur í deilum vegna arfs sem á skipta milli fjögurra uppkominna systkina. Þegar líður á söguna kemur í ljós aðmeira liggur undir en arfurinn, óuppgert fjölskylduleyndamál sem hefur verið þaggað í hel. Við ræðum við Silje Beite, þýðanda, um Arf og umhverfi.

En við hefjum þáttinn á minnast merks japansks tónlistarmanns sem féll frá um liðna helgi, Ryuichi Sakamoto.

Frumflutt

3. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,