Víðsjá

Heyr himna og glænýir nýræktarstyrkhafar

Við lítum í heimsókn í sögufrægt hús hér í borg, Englaborg við Klambratún, þar sem myndlistarmaðurinn Sigtryggur Bjarni Baldvinsson býr ásamt fjölskyldu sinni. Jón Engilberts og eiginkona hans Tove Engilberts byggðu húsið eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn en örlögin höguðu því þannig Sigtryggur og fjölskylda keyptu Englaborg af Engilberts-fjölskyldunni. Stór hluti hússins er vinnustofa og í dag opnar Sigtryggur Bjarni sýningu á vinnustofunni. Við fáum líka innlit frá glænýjum handhöfum nýræktarstyrkja frá Miðstöð íslenskra bókmennta, en tilkynnt var um styrkhafa þeirra í Gunnarshúsi kl 16 í dag.

Birt

28. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,