Víðsjá

Ásta Fanney, Álfheiður Erla og Ása Bríet

Lady Lazarus, tónleikar sópransönkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanistans Kunal Lahiry, eru lokatónleikar á svokallaðri ECHO Rising Stars tónlistarhátíð, sem fer fram í Hörpu um helgina. ECHO Rising Stars er verkefni á vegum samtaka evrópskra tónleikahúsa sem gefur ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á koma fram á bestu tónleikasviðum Evrópu, þar á meðal í Hörpu. Við heyrum nánar af verkefninu og tónleikum þeirra Álfheiðar Erlu og Kunan í þætti dagsins. Við tökum einnig á móti Ásu Bríeti Brattaberg, fata og textílhönnuði, en hún býr í París þar sem hún starfar við prjónadeild Dior tískuhússins. Ása Bríet sýnir og segir frá masterslínu sinni frá París í tengslum við Hönnunarmars í Norræna húsinu á morgun, en lína er innblásin af tímabili í Íslandssögunni sem við köllum Ástandið. En við hefjum þáttinn á því hringja til Feneyja, þar sem allt iðar af lífi, myndlist og spennu því stærsti myndlistarviðburður heims opnar dyr sínar á laugardag, 9.maí. Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi okkar á æringnum, en við hringjum í fulltrúa menningarþátta Rásar 1 á svæðinu, Kristján Guðjónsson, til heyra af stemningunni í aðdraganda opnunar.

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,