Víðsjá

Svipmynd af Magnúsi Jóhanni

Í þætti dagsins spjöllum við við tónlistarmanninn Magnús Jóhann Ragnarsson sem hefur getið sér gott orð í tónlistarsenu þessa lands fyrir eigin verk og sem meðleikari margra. Hann stendur fyrir stórtónleikum í Háskólabíói sem fara fram 17. september en þar fagnar hann 30 ára afmæli og tíu ára starfsafmæli sem tónlistarmaður.

Á tónleikunum verður mörgu af helsta samstarfsfólki Magnúsar smalað saman og leikin lög sem spanna allan feril hans. Magnús og GDRN munu leika lög af geysivinsælum dægurlagaplötum sínum, þungavigtarmenn úr djassheiminum munu láta sjá sig og flytja lög af rómuðum samstarfsplötum. Magnús mun einnig flytja lög og gömul einn síns liðs, vopnaður hljóðgervlum af ýmsum toga

Birt

1. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,