Víðsjá

Leyft öllum aldurshópum

Steinunn Þórarins í Úkraínu, Fuglinn bókaforlag, Íslandsklukka, Gunnella/rýni

Við fáum óvenjulega ferðasögu frá Steinunni Þórarinsdóttur í þætti dagsins en hún opnaði nýverið sýningu á stríðsminjasafninu í Kænugarði. Þar sýnir hún verkið Brynjur, sem var fyrst sett upp í New York árið 2018 en hefur ferðast um heiminn síðan.

Ný skáldsaga Steinars Braga, Frelsarinn, kemur út hjá bókaforlaginu Fuglinum í ár en að útgáfunni standa þeir Halldór Armand og Einar Aðalsteinsson. Þeir segja að fyrirkomulag ríkisstyrkja til bókmennta ýti nú höfundum út í útgáfubransann. Við heyrum í Halldóri í þætti dagsins.

Einnig verður rætt við Halldór Guðmundsson um Íslandsklukku Laxness og Karl Ágúst Þorbergsson rýnir í Gunnellu í Tjarnarbíói.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,