Víðsjá

Brotnar línur, Heyrðu mig og The Band

fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni.

Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, flytur sinn fyrsta pistil sem sviðslistarýnir. Hún fjallar um danssýninguna Heyrðu mig, eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, sem sýnt er í Ásmundarsal um þessar mundir. Verkið i er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona.

á miðvikudag stendur til sýna í Sambíóunum hina klassísku kvikmynd The Last Waltz í leikstjórn Martin Scorsese frá árinu 1978. Við munum því gefnu tilefni rifja upp eitt afar furðulegt atvik úr sögu þessarar sveitar.

Birt

24. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,