Víðsjá

Leyft öllum aldurshópum

Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill

Nína okkar kærasta Nína er titill sýningar sem stendur yfir á Listasafni Reykjanesbæjar. Á sýningunni er ljósi varpað á Nínu Sæmundsson sem hinsegin listamann og eru mörg verk frá ferli Nínu til sýnis, en einnig var starfandi listafólki úr hinsegin samfélaginu boðið að vinna verk á sýninguna út frá verkum Nínu. Sýningarstýrurnar, þær Viktoría Guðnadóttir og Ynda Eldborg segja frá í þætti dagsins.

Heimildamyndin Eyríki eftir Nikolai Galitzine er portrett af Grímsey og óður til fólksins sem hana byggir og elskar. Þegar best lét, bjuggu þar 120 manns en nú er framtíð byggðarinnar tvísýn. Dögg Mósesdóttir, framleiðandi myndarinnar, lítur við.

Og Haukur Þorgeirsson fjallar um Tokkarísku, Indó-Evrópska tungu sem hvarf af vörum fólks fyrir meira en 1000 árum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Pétur Eggertsson.

Þættir

,