Víðsjá

Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi

Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum.

Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsinu og flytur hún rýni um sýninguna í þættinum.

Tumi Árnason, tónlistarmaður, ferðaðist yfir fjöllin til Hveragerðis og heimsótti hátíðina Hverafugl sem fór fram um síðustu helgi og mun hann gefa okkur skýrslu af sinni upplifun.

Við hringjum til útlanda og heyrum í íslenskum rithöfundi sem var senda frá sér sína fyrstu skáldssögu. Vilhjálmur Pétursson á sigurbók Nýrra radda hjá Forlaginu og nefnist hún Harðindi og segir frá ævintýrum manns og merar í martraðarkenndum eftir-heimsenda-veruleika hér á Íslandi.

Birt

2. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,