• 00:02:32Taugatrjágróður
  • 00:17:38Heimsmeistarinn
  • 00:23:51Rambó er týndur

Víðsjá

Rambó er týndur, Taugatrjágróður, Heimsmeistarinn

Samfélagsmiðlar, þráhyggja, karókí, einelti og neyslutilvera okkar eru þræðir sem tengjast í nýjustu skáldsögu Yrsu ÞallarGYlfadóttur, Rambó er týndur. Bókin fjallar um Söndru, kennara sem elskar versla á Bland og syngja í karókí, og ferðalag hennar inn í samfélag hundafólks á internetinu. Við ræðum við Yrsu í þætti dagsins og heyrum brot úr Rambó er týndur.

Taugatrjágróður nefnist nýútkomin ljóðabók Aðalheiðar Halldórsdóttur, dansara, leikkonu og danshöfunar. Bókin er heildræn frásögn sem fylgir sögumanni í eins konar öngutúr, þar sem leitað er svara við hinum ýmsu spurningum um eðli tilverunnar. Aðalheiður verður gestur okkar í dag.

Og Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í Heimsmeistarann eftir Einar Kárason.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson

Frumflutt

9. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,