Víðsjá

Aðflæði Guðmundar Ármann og leikhústónlist Hjálmars H Ragnarssonar

Guðmundur Ármann á baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu og nýlega opnaði yfirlitssýning á verkum hans á Listasafni Akureyrar, undir yfirskriftinni Aðflæði. Guðmundur flutti til Akureyrar árið 1972, eftir prentmyndasmíðanám, nám í Myndlista- og handíðaskólanum og við Valand-listaháskólann í Gautaborg. Víðsjá mælti sér mót við Guðmund Ármann á sýningunni, sem einkennist af fjölbreyttri leit listamannsins túlkunarformi. Öll veröldin er leiksvið - tónleikar með leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar verða haldnir í Norðurljósasal Hörpu annað kvöld. tónleikunum koma margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar til þess halda upp á ævi og lífsstarf Hjálmars. Meðal þeirra er söngkonan Hallveig Rúnarsdóttir, sem kemur í hljóðstofu til þess segja nánar af viðburðinum.

Birt

10. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,