Víðsjá

Vísitala, Sumartónleikar í Skálholti og sköpunarkraftur náttúrunnar

Hagfræði og myndlist, fagurfræði og fjármál - þetta eru heimar sem sjaldan mætast þannig úr verði listaverk. En á fimmtudag opnaði í Ásmundarsal einkasýning Geirþrúðar F. Hjörvar sem kallast Vísitala. Þar eru listaverk sem sprottin eru upp úr persónulegri hrifningu Geirþrúðar á tölfræðilegum breytum settum fram á sjónrænan máta sem einföld tölfræðirit. Vísitala sækir innblástur í skýringarmyndir fjármálakerfisins og einnig þá hugmynd hægt formgera efnahagsstefnur í haldbæra hluti. Við hittum Geirþrúði F. Hjörvar í Ásmundarsal í þættinum.

?Getum við tamið okkur hugsa minna eins og einstaklingar og meira eins og ein heild? Reynt sjá hvernig allur lífsvefurinn er samfelldur þráður með uppruna í sama punktinum.? Freyja Þórsdóttir ætlar kafa ofan í djúpið, alla leið til uppruna lífsins. í lokapistli sínum hér í Víðsjá. Þar fjallar um sköpunarkraftinn sem býr í náttúrunni og okkur sjálfum (og hvernig við tökum hann stundum út úr hringrásinni og beitum honum á hátt sem er á skjön við heilbrigði jarðarinnar og lífsins).

Sumartónleikar í Skálholti hefjast á morgun og standa yfir til 9.júlí. Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri þetta árið, en hann flutti aftur heim til Íslands fyrir tveimur árum, eftir margra ára dvöl erlendis. Bene­dikt hef­ur verið önn­um kaf­inn sem sjálf­stætt starf­andi söngv­ari síðan hann flutti til Berlín­ar 2008, og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlaun frá því hann útskrifaðist frá Hanns Eisler-tón­list­ar­há­skól­an­um í Berlín 2015. Hann hefur komið fram í mörgum stærstu tónleika- og óperuhúsum heims, er stöðugt á ferðinni og bókaður langt fram í tímann, en hann hefur gefið sér tíma til stýra hinni rótgrónu tónlistarhátíð Sumartónleika í Skálholti.

Frumflutt

27. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,