Víðsjá

Hörður í Gerðarsafni, Dúkkuverksmiðjan, Barn náttúrunnar

Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt rífast,“ sagði hann eitt sinn, en á nýrri sýningu um listamanninn í Gerðarsafni er fókusinn settur á arkitektinn Hörð, og dregin fram verk sem sýna fyrst og fremst nálgun hans á form og litafræði. Sýningarstjórar eru þau Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns og grafísku hönnuðurnir Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir. VIð hittum þau á safninu í þætti dagsins.

Einnig rýnir Gauti Kristmannsson í Dúkkuverksmiðjuna eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur og við þjófstörtum Aldrei las ég Laxness bókaklúbbinum.

Birt

16. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Þættir

,