Víðsjá

Pissuskál Duchamp eða Elsu, Seiðstorumur, Sequences

Verkið Fountain eftir Marcel Duchamp, betur þekkt sem pissuskálin, markar kaflaskil í vestrænni listasögu, og er jafnan talið vera eitt af fyrstu verkunum sem síðar voru kennd við konseptúalisma, eða hugmyndalist. hefur komið í ljós þetta höfuðverk hans er mjög líklega alls ekki eftir hann, heldur eftir vinkonu hans, þýsku dada-listakonuna Elsu von Freytag-Loringhoven. Vakið var máls á þessu í Guardian í síðustu viku en þetta er alls ekki í fyrsta sinn sem listfræðingar stíga fram með þessa hugmynd, umræðan hefur verið í gangi síðan nokkru fyrir aldamót. Við kynnum okkur málið í þætti dagsins.

Við heyrum við einnig af nýjustu skáldsögu furðusagnahöfundarins Alexanders Dan Vilhjálmssonar, Seiðstormi sem er hluti af Hrímlandsbókaflokk höfundar. Hrímland þykir líkjast Íslandi en í bókunum er hins vegar finna seiðmagnsvirkjun í Öskjuhlíð, sofandi bergrisa á skolavörðuholti, eins konar fríríki í vestmannaeyjum og hinar ýmsu furðuverur úr íslenskum menningararfi.

Og lokum segir Dagbjört Drífa Thorlacius frá verki eistneska gjörningalistamannsins Johhan Rosenberg, hann sýndi nýverið verk sitt Gildrur á Sequences listahátíðinni

Frumflutt

23. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Víðsjá

Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Þættir

,